Hjá Stopp færðu aðstoð með þín fjármál. Hvort sem um er að ræða vanskil sem þarf að lagfæra, samninga við lánadrottna eða einfaldlega fá betri yfirsýn yfir fjármálin. Ekkert vandamál er svo stórt að það sé ekki leysanlegt.
Stöðumat: Í stöðumatinu kemur þú til okkar og sameiginlega förum við yfir tekjur og útgjöld heimilisins. Ef í ljós kemur að tekjurnar eru lægri en gjöldin, komum við með tillögur að aðgerðum til að koma því í lag.
Skuldahjálp: Aðstoðin er sniðin að fólki í skuldavanda. Við kortleggjum skuldirnar fyrir þig og semjum uppá nýtt við lánadrottna svo þú komist aftur á rétt ról. Einnig látum við þér í té nákvæmt yfirlit yfir tekjur og gjöld og hvenær á að greiða hvað og hver afgangurinn verður. Þeir sem eru í greiðsluþjónustunni fá mánaðarlega endurnýjað yfirlit.
Námskeið: Eru allir að gera það gott nema ég? Hvernig stendur á því að fólk almennt virðist geta leyft sér hina og þessa hluti en eru samt bara á "venjulegum launum" Námskeið Stopp er sniðið að þeim sem vilja fá afgang í budduna
Greiðsluþjónusta: Láttu okkur um að greiða reikningana og það á réttum tíma! Við sendum þér mánaðarlegt stöðuyfirlit um hvað var greitt og hvenær. Það er góð tilfining að sjá skuldirnar lækka.