Getum við ekki nafngreint viðskiptavini okkar þar sem við heitum fullum trúnaði við okkar viðskiptavini. Það breytir því ekki að okkur þykir óskaplega vænt um þau fallegu orð sem viðskiptavinir okkar hafa um okkur. Því látum við nokkrar umsagnir flakka
Aðstoð Stopp bjargaði mér alveg, Ég var komin með alvarleg vanskil og innheimtubréfin mynduðu fjall í stofuskápnum hjá mér. Eftir að hafa notið þjónustu Stopp, komust mín mál á hreint og ég get nú greitt það sem mér ber í hverjum mánuði.
Hjá Stopp fékk ég persónulega og góða þjónustu og mæli hiklaust með aðstoð þeirra.
Þótt ekki væri ég með vanskil þá var greiðslubyrði mín mjög há. Stopp hjálpaði mér að endurskipuleggja mín fjármál.
Námskeiðið hjá þessum snillingum er frábært. Nú er loksins gaman að fara yfir fjármálin!