Vanskil eru erfið og dýr. Þau taka á andlega og auka vanlíðan þeirra sem við þau berjast. Fjármálaaðstoð Stopp felur í sér að eftir að hafa farið yfir og kortlagt stöðuna er hafist handa við að eyða vanskilum. Það er hægt að gera á marga vegu, aðalatriðið er að koma vanskilum út af borðinu og eftir sitji aðeins greiðslur sem þú ræður vel við. Stopp sér um öll samskipti og samninga við lánadrottna.
Eftir að hafa náð yfirsýn yfir fjármálin er samin verkáætlun. Verkáætluin þessi er eintak viðskiptavinarins. Þar fær hann yfirsýn yfir hvað á að gera og hvenær. Með reglulegu millibili er haft samband við viðskiptavininn svo hann hafi ávallt fulla yfirsýn um hvernig málin standa. Vissulega getur verkáætlun breyst, hún tekið lengri eða skemmri tíma eða ný atriði komið uppá, þá er haft samband og skýrt frá því.
Við hjá Stopp aðstoðum með allar helstu skuldir er varða einstaklinga. Má þar nefna: