Heim

Hafa samband

Af hverju greiðsluþjónusta?

Fyrir þá sem kjósa áhyggjulaust líf og vilja sleppa við áhyggjur af greiðslu reikninga um hver mánaðarmót er greiðsluþjónusta Stopp rétta lausnin. Greiðsluþjónustan er verulega frábrugðin venjulegri greiðsluþjónustu í banka. Greiðsluþjónusta Stopp virkar þannig að um hver mánaðarmót er sendur tölvupóstur til viðskiptavina þar sem fram kemur hvaða reikningar voru greiddir og hvað mikið er í afgang fyrir þig til að eyða. Innifalið er árlegur fundur með ráðgjafa þar sem þú getur nýtt tímann í hvað sem er sem tengist fjármálum, hvort sem það eru þín eigin fjármál sem þú vilt forvitnast meira um eða almennt um fjármál. Einnig hefur þú tölvupóst aðgang að þínum einkaráðgjafa hvenær sem er á tímabilinu.

Hvernig er þjónustan frábrugðin greiðsluþjónustu bankanna?

Þjónustan er nokkuð frábrugðin annarri greiðsluþjónustu:

  • Við sjáum um greiðslur til innheimtuaðila eftir að hafa náð samningum við þá.
  • Við sendum út mánaðarlegt yfirlit yfir hvað var greitt og hvenær.
  • Við sendum einnig út yfirlit mánaðarlega yfir hvað þú átt inni í greiðsluþjónustunni. Það er því engin hætta á að fjármunir dagi uppi, ónotaðir.
  • Aðgagnur að óháðum ráðgjafa sem stendur þér við hlið og er ekki á mála hjá öðrum.

 

 

Stopp - Ármúla 20, 108 Reykjavík S: 533-1200