Í stöðumatinu kemur þú til okkar og sameiginlega förum við yfir tekjur og útgjöld heimilisins. Ef í ljós kemur að tekjurnar eru lægri en gjöldin, komum við með tillögur að aðgerðum til að koma því í lag.
Sé þess óskað höldum við áfram vinnu fyrir þig og lagfærum það sem lagfæra þarf í fjármálunum þínum svo þú komist aftur á rétt ról.