Joomla TemplatesWeb HostingWeb Hosting
Home

Velkomin til stopp.is

Hlutverk Stopp er að veita einstaklingum og heimilum alhliða fjármálaráðgjöf. Má þar nefna:

  • Aðstoð við að breyta vanskilum í skil
  • Aðstoð við að endurskipuleggja fjármál heimilisins
  • Óháð ráðgjöf varðandi sparnað
  • Óháð tryggingaráðgjöf á sviði persónu- og heimilistrygginga
 

Þitt einkanámskeið - Þín fjármál

Fjármálanámskeð Skilviss fara þannig fram að við komum heim til okkar viðskiptavina og höldum námskeiðið þar. Þá getur sá sem situr námskeiðið spurt spurninga að vild og þarf ekki að hafa áhyggjur af hvað aðrir halda um þær spurningar því oft er það svo að menn halda að sínar spurningar séu ekki nógu "gáfulegar" en heima við er hægt að spyrja spjörunum úr án þess að hafa áhyggjur af því. Þeir sem vilja ekki fá heimsókn er að sjálfsögðu velkomið að koma til okkar að Ármúla 20 2. hæð og við förum yfir málin þar. Panta þarf tíma í síma 533-1200

Lesa meira

 

Við semjum við lánadrottna

Vanskil geta safnast upp á bestu bæjum! Stundum leysast þau mál ekki á örfáum vikum eða mánuðum. Ástæður þess geta verið margvísleg, veikindi, atvinnumissir eða hreinlega aðrir atburðir sem gerast í lífi hvers og eins sem hafa áhrif á fjármálin.  Oft getur verið erfitt að koma sér af stað og fá fjármálin á hreint. Ekki eiga allir auðveltt með að komast úr vinnu eða réttur hvers og eins liggur ekki ljós fyrir. Þá getur verið gott að geta leitað á önnur mið og fengið óháðan aðila til að ganga til liðs við sig

 
Polls
Joomla! is used for?